Sl. vor sótti skólinn um að taka þátt í Comeníusarverkefni og fengum að vita það seinnipartinn í sumar að umsókn okkar hefði verið samþykkt.
Þetta er mjög spennandi verkefni sem ber yfirskriftina „Keep fit and active-be healthy and happy“
Hljómar þessi yfirskrift mjög vel við áherslur okkar í skólanum á hollan mat og aukna hreyfingu og hollustu bæði á sál og líkama.
Verkefnið er samstarfsverkefni 13 grunnskóla í 11 Evrópulöndum. Samstarfslöndin eru auk Íslands: Þýskaland (2 skólar), Finnland (2 skólar), Frakkland, Grikkland, Lettland, Noregur, Pólland, Portúgal, Spánn og Rúmenía. Verkefnið sem slíkt hefur verið í gangi nokkuð mörg ár, en breyttar áherslur í hvert skipti sem það er endurnýjað og alltaf koma nýjir og nýjir aðilar inn og einhverjir detta út.
Þetta verkefni hefst í ágúst 2010 og því lýkur í júlí 2012. Umsjón með verkefninu fyrir hönd skólans hefur Sigríður Björk Kristinsdóttir kennari .
Styrkurinn sem fæst frá Evrópusambandinu er 18.000 evrur (u.þ.b. 2,800.000 ísl. kr ) og á sú upphæð að duga fyrir ferðum á samstarfsfundi, öllum kosnaði við það, ýmsum tilfallandi kosnaði skólans vegna verkefnisins og hugsanlegra tækja eða námsefniskaupa vegna verkefnisins.
Skipulagðir eru 4 sameiginlegir fundir sem 2-3 starfsmenn skólans munu sækja . Björk er aðal tengiliður en síðan er stefnt að því að sem flestir sem áhuga hafa geti tekið þátt í verkefninu. Fyrsti fundurinn er á frönsku eyjunni Martinique 16 – 24 okóber. Björk og Dóra Líndal fara á þann fund. Næsti fundur verður á Spáni í maí 2011. Þriðji fundurinn verður í Rúmeníu í október 2011 og fjórði og síðasti fundurinn í Grikklandi í apríl 2012.
Verkefnin eru mjög fjölbreytt og geta tengst inn á margar námsgreinar, t.d. náttúrufræði, íþróttir, heimilisfræði, tungumál, samfélagsfræði, stærðfræði, upplýsingatækni og lífsleikni. Við reiknum með að sem flestir starfsmenn skólans taki þátt í verkefninu á einn eða annan hátt.
Nemendur munu í fyrstu m.a. læra um brennslu, heilsufarsvandamál og mikilvægi staðgóðs morgunverðar ásamt því hvernig næringu sé best að fá ef maður stundar íþróttir. Skipulögðum verkefnum er skipt niður á tímabil og er t.d. verkefni janúarmánaðar 2011 að safna saman hollum uppskriftum og gefa út matreiðslubók fyrir krakka.
Hver skóli sem tekur þátt í verkefninu hefur yfirumsjón með nokkrum verkefnum og mun Heiðarskóli ásamt öðrum finnska skólanum sjá um orðabók með orðum sem tengjast heilsu og einnig munum við hafa umsjón með heilsu uppskriftabók barna ásamt skólanum frá Póllandi.
Heimasíða verkefnisins er http://www.our-comenius.net/.
|